Láttu að þér kveða Leiðarvísir fyrir foreldra þegar velja á stofnanir, félög og námskeið fyrir börn. Glærukynning - Powerpoint
Vefsmíði: Tónaflóð |
|
Forsíða > Viðburðardagatal
Viðburðardagatal
Skráðir viðburðir þann 25. mars 2010
Verndarar barna
Hefst kl.: 18:00
Staðsetning: Haukanesi 23, Garðabæ
Námskeiðið Verndarar barna boðar byltingu í fræðslu, forvörnum og viðbrögðum við kynferðislegri misnotkun á börnum. Markmiðið er að veita fullorðnu fólki öfluga fræðslu og markvissa þjálfun í að fyrirbyggja, þekkja og bregðast við kynferðislegri misnotkun barna af hugrekki og ábyrgð. Námsefnið Verndarar barna er sérhannað fyrir stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök sem þjóna börnum og unglingum – sem og einstaklinga sem bera ábyrgð á umönnun og verndun barna; sínum eigin eða annarra. Efnið byggist á 7 skrefa bæklingnum til verndar börnunum okkar. Innifalið í verði er verkefnabók og stefnumótunarupplýsingar fyrir félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki sem vinna með börnum.
Námsefnið er íslensku og fræðslumyndbandið er á ensku en með íslenskum texta.
Námskeiðskostnaður kr. 5.000, innifalið er vinnubók og kaffiveitingar.
Endilega skráið ykkur með því að senda tölvupóst á blattafram@blattafram.is eða í síma 893-2929
Leiðbeinandi: Sigríður Björnsdóttir
.................................
Til baka | |
|